TAKK FYRIR AÐ KOMA ♥

Um helgina frumsýndum við tvær goðsagnir í heimi jeppa, nýja Jeep Grand Cherokee og Jeep Wrangler Rubicon, og þátttakan lét ekki á sér standa. Fjöldi fólks gerði sér ferð til okkar hérna í Mosfellsbæinn til að upplifa og skoða goðsagnirnar með eigin augum. Við þökkum öllum þeim sem gáfu sér tíma til að kíkja á okkur ♥

Fyrir ykkur sem komust ekki hvetjum við ykkur endilega að kíkja í kaffi, skoða og upplifa þessa ómótstæðulegu jeppa með eigin augum og bera saman verð og aukabúnað.

Jeep Grand Cherokee – Goðsögnin endurfæðist sem Plug-in Hybrid

Verðlaunaðasti jeppi sögunnar er nú fáanlegur í fyrsta skipti í Plug-In-Hybrid útfærslu hlaðinn lúxusstaðalbúnaði og með enn meira rými en áður í farangursrými, sem rúmar nú auðveldlega fjögur golfsett auk farangurs. Glæsilegt nýtt útlit og einstök þægindi fyrir kröfuharða kaupendur sem þekkja gæði og vandaðan frágang. Framúrskarandi aksturseiginleikar með stillanlegri loftpúðafjöðrun hvort sem ekið er á malbiki eða á torfærum slóðum.

Verð á nýjum Jeep Grand Cherokee Summit Reserve 4xe Plug-In-Hybrid er 16.990.000 kr. með öllum búnaði.

Jeep Wrangler Rubicon – Goðsögnin tekur næsta skref

Ný útfærsla á hinum eina sanna Wrangler sem kemur hlaðin nýjungum. Nýr framendi með nýju grilli, nýtt mælaborð með 12” upplýsinga- og snertiskjá, þráðlausar tengingar við Apple og Android síma, rafdrifin framsæti, ný hönnun á sætum, fljótandi afturöxull, nýtt útlit á felgum og app sem forhitar, kannar stöðu á rafhlöðu, eldsneyti og staðsetningu, opnar og læsir og margt fleira.

Verð á nýjum Jeep Wrangler Rubicon 4xe Plug-In-Hybrid er 13.990.000 kr. með öllum búnaði