ÍSLENSK-BANDARÍSKA
Íslensk-Bandaríska ehf eða ÍSBAND eins og fyrirtækið er daglega kallað var stofnað 1998 af Októ Þorgrímssyni utan um innflutning á notuðum bílum frá Bandaríkjunum. Fljótlega þróaðst reksturinn í að flytja einnig inn nýja bíla og ferðavagna.
ÍSBAND hefur verið öflugt í innflutningi á bílum frá Jeep, Ram og Dodge og hefur Jeep Grand Cherokee verið einn vinsælasti jeppi landsins þrátt fyrir að ekki hafi verið umboð fyrir tegundina í fjölda ára, fyrr en nú. Sama má segja um Ram pallbílana.
Það var í byrjun árs 2016 að Fiat Chrysler í Evrópu og Bandaríkjunum valdi ÍSBAND til að vera dreifingaraðila sinn á Íslandi . Í byrjun árs 2017 opnaði ÍSBAND nýjan og endurbættan sýningarsal í Þverholtinu. Þar hafði systurfyrirækið 100.bilar sem selur notaða bíla líka verið til húsa en 100 bílar fluttu í Stekkjarbakka 5 við hliðina á Garðheimum í Mjódd í ágúst 2016.
Þjónustuverkstæði og varahlutaverslun er á Smiðshöfða 5 en þar er mikil lofthæð til að geta sinnt vel stórum bílum eins og húsbílum, atvinnubílum og pallbílum. Við sinnum öllum almennum viðgerðum á öllum tegundum bíla enda eru starfsmenn okkar með áratuga reynslu frá öðrum bifreiðaumboðum.
ÍSBAND var veitt jafnlaunastaðfesting Jafnréttisstofu árið 2023 og Jafnréttisstofa staðfesti að jafnréttisáætlun Ísband standist kröfur laga árið 2022.

ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF.
kt. 6204983439 · vsknr. 57964
Einkahlutafélag skráð í hlutafélagaskrá
SÖLUDEILD OG SKRIFSTOFA:
Sími: 590 2300
Þverholti 6, 270 Mosfellsbæ
Netfang: isband@isband.is
VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN:
Sími: 590 2323
Smiðshöfða 5, 110 Reykjavík
Netfang: thjonusta@isband.is
Netfang: varahlutir@isband.is
HAFA SAMBAND
Vinsamlegast fyllið út formið hér fyrir neðan
til að senda okkur fyrirspurn eða sendið
tölvupóst á thjonusta@isband.is
STARFSFÓLK

Viðar Sveinbjörnsson
Verslunarstjóri varahlutaverslunar
vidar@isband.is
GSM: 620 2332
Sími: 590 2334