Öflugur pallbíll fyrir allar áskoranir
RAM 1500 endurspeglar nútímalega ytri og innri hönnun sem gefur bílnum djarft og kraftmikil yfirbragð. Öflugar en sparneytnar sex cylindra 3,0 lítra Hurricane vélar sem skila allt að 540 hestöflum.
Ram 1500 hefur verið endurhugsaður en endurspeglar áfram það djarfa og hetjulega yfirbragð sem Ram hefur verið þekkt fyrir í gegnum árin. Nýr RAM 1500 er samstundis auðþekkjanlegur, með sínum sterkum einkennum.
RAM 1500 er fáanlegur í þremur útfærslum: Rebel, Limited og RHO.
Hægt er að sérpanta flestar útfærslur RAM 1500.
Sniðinn að þínum þörfum
Við bjóðum upp á 35”, 37” og 40” breytingar á RAM pallbílum ásamt að vera með fjölbreytt úrval af aukahlutum. ÍSBAND er eina bílaumboðið sem sérhæfir sig í breytingum en það þýðir að breyttur RAM frá ÍSBAND heldur ábyrgðinni.
5 ára ábyrgð
Í fyrsta sinn 5 ára verksmiðjuábyrgð á stórum amerískum pallbíll
RAM sem ekki eru fluttir inn af ÍSBAND, umboðsaðila RAM á Íslandi, hvort sem er frá Evrópu, USA eða Kanada eru ekki með verksmiðjuábyrgð frá framleiðanda. 5 ára verksmiðjuábyrgð er eingöngu á RAM pallbílum innfluttum af ÍSBAND og tryggir að allar innkallanir og uppfærslur sem kunna að berast á líftíma bílsins eru framkvæmdar.



















