Laugardaginn 29. ágúst kl. 11-16 “í Túninu heima” mun ÍSBAND umboðsaðili LEAPMOTOR á Íslandi, frumsýna tvo nýja og glæsilega 100% rafknúna bíla frá LEAPMOTOR.
B05 gerir hverja ökuferð að spennandi ævintýri. Djörf coupé-innblásin hönnun, fágaðar línur, rammalausar hurðir og LED-ljós gefa B05 einkennandi yfirbragð sem sker sig úr. B05 býður upp á einstaka akstursupplifun með sportlegri fjöðrun og launch control. B05 skilar akstursupplifun sem er meira lifandi en hjá flestum sambærilegum rafbílum með afturhjóladrifinni uppsetningu og multi-link afturfjöðrun byggt á grunni LEAP 3.5.
B03X er framdrifinn 4,2m jepplingur, þægilegur í akstri og auðvelt að leggja honum í stæði. 5 metra beygjuradíus gerir akstur í borginni einfaldari og áhyggjulausan. B03X er Þægilegur og auðveldur í aðgengi með hárri sætisstöðu. Flatt gólf, sveigjanleg sætaskipan, 33 geymsluhólf og flatt farangursrými tryggja hámarksnytsemi í daglegri notkun.
B05 og B03X eru líkt og aðrir bílar frá LEAPMOTOR hannaðir með það að markmiði að slaka ekki á gæðum eða eiginleikum fyrir hagkvæmni, heldur veita íslenskum bílakaupendum raunveruleg verðmæti án málamiðlana og bjóða þeim að stökkva inn í nýja veröld þar sem tækni og framúrstefnuleg hönnum mætast í nýrri tegund rafmagnsbíla.
LEAPMOTOR fjölskyldan er ört stækkandi og telur nú fimm bíla. Smábílinn T03, þá B03X jepplinginn, miðstærðarbílana B05 og B10 og svo flaggskipið C10 AWD. Flestir ættu að finna rafmagnsbíl við sitt hæfi í fjölbreyttu vöruvali LEAPMOTOR.
LEAPMOTOR er í samvinnu við bílarisann Stellantis í Evrópu og fellur inn í þjónustunet Stellantis. Undir hatti Stellantis eru þekkt merki líkt og Jeep, RAM, Fiat, Maserati og fleiri merki, en ISBAND sinnir allri sölu og þjónustu fyrir LEAPMOTOR á Íslandi og er í góðu sambandi við þjónustuaðila á landsbyggðinni.
Ódýrustu rafbílar landsins í sínum stærðarflokkum
B05 er á einstöku verði, er rúmgóður, vel útbúinn og fáanlegur í tveimur útfærslum. Life sem er með 56,2 kWh rafhlöðu og drægni upp á 401 km samkvæmt WLTP. Design útfærslan er með 67,1 kWh rafhlöðu og drægni upp á 482 km samkvæmt WLTP. Í Life útgáfu má nefna sem staðalbúnað, sjálfvikra loftkælingu, 360° myndavél, ADAS aðstoðarökumannskerfi með fjölmörgum hagnýtum aksturstillingum, 14,6” og 2,5K upplýsinga- og snertiskjá, 8,8” mælaborð, 19” álfelgur, LED aðalljós og LED ljós að aftan. Verð á B05 Life er 3.490.000 kr. með rafbílastyrk. Listaverð 3.990.000 kr.
Í Design útgáfu bætast við panorama glerþak með rafdrifinni gardínu, leðursæti, rafdrifið ökumanns- og farþegasæti frammí, hiti í framsætum og stýri, stemmningslýsing í innra rými ofl. Verð á B05 Design er 3.990.000 kr. með rafbílastyrk. Listaverð 4.490.000 kr.
B03X er einn ódýrasti rafbíll landsins í sínum stærðarflokki. Hann er sérlega rúmgóður, vel útbúinn og fáanlegur í tveimur útfærslum. Life sem er með 39,8 kWh rafhlöðu og drægni upp á 292 km samkvæmt WLTP. Design útfærslan er með 53 kWh rafhlöðu og drægni upp á 382 km samkvæmt WLTP. Í Life útgáfu má nefna sem staðalbúnað sjálfvikra loftkælingu, bakkmyndavél, ADAS aðstoðarökumannskerfi með fjölmörgum hagnýtum aksturstillingum, 14,6” og 2,5K upplýsinga- og snertiskjá, 8,8” mælaborð, 18” felgur, LED aðalljós og þakbogar. Verð á B03X Life er 2.990.000 kr. með rafbílastyrk. Listaverð 3.490.000 kr.
Í Design útgáfu bætast við leðursæti, rafdrifið ökumannssæti, hiti í framsætum og stýri, 360° myndavél, 18” álfelgur, stemmningslýsing í innra rými ofl. Verð á B03X Design er 3.590.000 kr. með rafbílastyrk. Listaverð 4.090.000 kr.
Frumsýningin er laugardaginn 29. ágúst kl. 11:00-16:00. Þessa helgi fer fram bæjarhátíð Mosfellsbæjar “Í Túninu heima”. Á bílaplani ÍSBAND verður Taylors Tivolí alla helgina og á frumsýningardaginn verður fótboltavöllur í boði Pepsi hjá okkur.
Frumsýning á nýjum B05 og B03X er í sýningarsal ÍSBAND, Þverholti 6 í Mosfellsbæ.



