ÍSBAND, umboðsaðili RAM á Íslandi, frumsýnir laugardaginn 18. apríl, nýja RAM 2500 Heavy Duty pallbíla. Til sýnis verða RAM pallbílar í Laramie og Limited í Mega Cab útfærslum. Auk þess verður nýr „off-road“  RAM 2500 Rebel Crew Cab frumsýndur.

Helstu nýjungar í RAM sem sýndar og kynntar verða, eru:

  • 4 Link loftpúðafjöðrun að aftan sem setur ný viðmið í akstursþægindum
  • Ný 8 þrepa sjálfskipting sem skilar betri afköstum og mýkri akstri
  • Nýr „off-road“ pakki í Ram Rebel sem inniheldur m.a  100% rafmagnslæsingu í afturdrifi – brettakanta og gróf 33” dekk
  • Aukið afl- og tog, vélin er 430 hestöfl og skilar 1.458 Nm togi
  • Nýr og stærri 14,4″ upplýsinga- og snertiskjár og 10,25″ skjár fyrir farþega
  • Í fyrsta skipti á Íslandi boðið upp á 5 ára verksmiðjuábyrgð á Heavy Duty pallbíl
  • Reynsluakstur verður í boði á meðan sýningu stendur

Breytingpakkar

Á sýningunni verða RAM pallbílar sýndir með 35″, 37″ og 40″ breytingum. Breytingaverkstæði ÍSBAND sérhæfir sig í breytingum á RAM og er ISBAND eina bílaumboðið sem sér sjálft um að framkvæma slíkar breytingar.

Sýningin er opin á milli kl. 12–16 í sýningarsal ÍSBAND í Þverholti 6  Mosfellbæ. Á meðan sýningunni stendur verður boðið upp á reynsluakstur á nýjum RAM.