ÍSBAND, umboðsaðili RAM á Íslandi, frumsýnir laugardaginn 18. apríl, nýja RAM 2500 Heavy Duty pallbíla. Til sýnis verða RAM pallbílar í Laramie og Limited í Mega Cab útfærslum. Auk þess verður nýr „off-road“ RAM 2500 Rebel Crew Cab frumsýndur.
Helstu nýjungar í RAM sem sýndar og kynntar verða, eru:
- 4 Link loftpúðafjöðrun að aftan sem setur ný viðmið í akstursþægindum
- Ný 8 þrepa sjálfskipting sem skilar betri afköstum og mýkri akstri
- Nýr „off-road“ pakki í Ram Rebel sem inniheldur m.a 100% rafmagnslæsingu í afturdrifi – brettakanta og gróf 33” dekk
- Aukið afl- og tog, vélin er 430 hestöfl og skilar 1.458 Nm togi
- Nýr og stærri 14,4″ upplýsinga- og snertiskjár og 10,25″ skjár fyrir farþega
- Í fyrsta skipti á Íslandi boðið upp á 5 ára verksmiðjuábyrgð á Heavy Duty pallbíl
- Reynsluakstur verður í boði á meðan sýningu stendur
Breytingpakkar
Á sýningunni verða RAM pallbílar sýndir með 35″, 37″ og 40″ breytingum. Breytingaverkstæði ÍSBAND sérhæfir sig í breytingum á RAM og er ISBAND eina bílaumboðið sem sér sjálft um að framkvæma slíkar breytingar.
Sýningin er opin á milli kl. 12–16 í sýningarsal ÍSBAND í Þverholti 6 Mosfellbæ. Á meðan sýningunni stendur verður boðið upp á reynsluakstur á nýjum RAM.



